Nemendur eiga að halda dagbók þar sem þau skrifa, í hlutverki, um það sem hefur gerst í lífi persónunnar sem þau hafa búið til. Að skrifa í hlutverki býður upp á enn meiri nálgun við þá persónu sem nemendur eiga að vera að túlka. Nemendur geta sett fram ólíkar aðstæður sem þau þurfa að kljást við og leysa síðan úr. Að skrifa í hlutverki getur eflt fjölbreytileika í málnotkun og hjálpað nemendum að ,,öðlast reynslu og þekkingu í mismunandi notkun málsins eftir því hvaða orðalag er viðeigandi hverju sinni’’ (Anna Jeppesen og Ása Helga Ragnarsdóttir, 2006). Þetta er aðferð sem tengist málgreind Gardners (Gardner, 1999). Hver dagbókarfærsla myndi vera um 150-200 orð en þó getur hver og einn kennari sniðið lengdina að sínum vilja.