ég Karen Dögg heiti ég og er fædd og uppalinn í Mývatnssveit.
Ég gekk í Grunnskóla Skútustaðarhrepps og útskrifaðist þaðan árið 2005. Eftir það lá leiðin í Verkmenntaskólann á Akureyri en ári síðar fluttum við fjölskylda búferlum og gerðum Akureyri, eða réttara sagt Þorpið, að okkar heimaslóðum. Eftir hlé, og flutning til Barcelona þar sem ég lærði spænsku, útskrifaðist ég af félagsfræðibraut VMA í desmber 2011. Í ágúst 2012 byrjaði ég í Kennarafræði, B.Ed. við Háskólann á Akureyri. Á meðan á náminu stóð gerði ég mér grein fyrir því að skipulag þess hentaði mér ekki og færði ég mig því yfir í Grunnskólakennarafræði, B.Ed. í Háskóla Íslands. Við þessa breytingu þurfti ég að taka nokkra auka áfanga en sumarið 2017 útskrifaðist ég með B.Ed. gráðu frá HÍ. Ég ákvað að skrá mig strax aftur til náms og frá því í ágúst 2017 hef ég lagt nám á Grunnskólakennarafræði, M.Ed. við Háskóla Íslands. Auks þess að vera í námi þá kenni ég spænsku á Akureyri. |