Í Aðalnámskrá grunnskóla eru hæfniviðmið og eitt af hæfniviðmiðum samfélagsgreina er að nemendur eigi að geta, við lok tíunda bekkjar, sett sig í spor annars fólks með ólíkan bakgrunn eða viðhorf, á ýmsum stöðum og tímum (Aðalnámskrá grunnskóla, 2013). Í Aðalnámskrá (2013) er einnig fjallað um að nemendur geti sýnt fram á mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, fyrir mannréttindum, félagslegu réttlæti, jöfnuði og helgi mannlegs lífs, vegið og metið skoðanir og upplýsingar, brugðist við þeim á fordómalausan og réttsýnan hátt og fengist við samfélagsleg og siðferðileg málefni frá mismunandi sjónarhólum. Með verkefninu vil ég reyna að efla hæfni nemenda sem koma að samhygð, jafnrétti, siðgæðisvitund og persónumótun ásamt öðrum kostum og vil ég eftir fremsta megni, með ólíkum verkefnum, stuðla að námi nemenda í þessum greinum. Með atburðaspjöldum verkefnisins gefst nemendum vonandi tækifæri á að leysa raunveruleg vandamál sem unglingar nú á dögum þurfa að fást við, eins og t.d. einelti og lélega sjálfsmynd, stefnt er að því að efla reynsluheim þeirra eins og hann kemur fram í Aðalnámskrá grunnskóla en með því er verið að tala um hæfni nemenda til að skilja veruleikann. Ég vænti þess að verkefnið geti komið að góðum notum í framtíðinni í kennslu á Íslandi og að hægt sé að nýta það á marga vegu. Ég vona að verkefnið verði kennurum hvatning til að nýta samþættingu námsgreina í auknum mæli í kennslu sinni.